Warning: Invalid argument supplied for foreach() in C:\inetpub\vhosts\steinapetra.is\httpdocs\modules\mod_mainmenu\legacy.php on line 268
There are no translations available.

Velkomin í stærsta steinsafn í heimi í einkaeign

Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir hefur haft áhuga á fallegum steinum alla ævi, en byrjaði að safna þeim fyrir alvöru 1946.

Steinarnir hennar eru langflestir úr Stöðvarfirði og af Austurlandi því Petra hefur nær ekkert leitað steina í öðrum landsfjórðungum.

Árið 1974 ákvað Petra að heimili hennar myndi í framtíðinni verða opið fyrir alla sem vildu skoða steinana hennar. Gestir Petru skipta því hundruðum þúsunda.
Vissulega hefur hús hennar tekið á sig svipmót safns en það er þó fyrst og síðast heimili.

Það fer ekki fram hjá neinum sem heimsækir Petru að hún er duglegur steinasafnari. Færri vita að söfnunaráhugi hennar einskorðast ekki við steinasöfnun. Petra safnar merktum pennum, bollum og fleiri smáhlutum auk þess sem hún hefur safnað hverskonar skeljum og kuðungum í marga áratugi.

Við vonum að þú njótir safnsins.

Síðan er enn í vinnslu svo vinsamlegast hafið þolinmæði. Allar ábendingar varðandi villur í texta eru vel þegnar.